26 mar 2020

Fræðslufyrirlestur fyrir nemendur: Hættum að fresta með aðferðum HAM

Helena Jónsdóttir sálfræðingur. Mynd: Lýðskólinn Flateyri
Helena Jónsdóttir sálfræðingur. Mynd: Lýðskólinn Flateyri

Fræðslufyrirlestur Helenu Jónsdóttur sálfræðings fyrir nemendur MÍ:

Hættum að fresta með aðferðum HAM

 

Fyrirlestrinum verður streymt til nemenda fimmtudaginn 26. mars kl. 10.10. Hvetjum nemendur MÍ til að mæta. Nemendur fá frekari upplýsingar með tölvupósti. 

 

Nú þegar nemendur í menntaskólum vinna heiman frá sér í fjarnámi reynir á aga og skipulag sem aldrei fyrr. Og þá geta kvíði, frestunarárátta eða rík tilhneiging til frestunar verið okkur mikil hindrun í að ná árangri. Á þessum fræðslufyrirlestri fá nemendur fræðslu um einkenni og afleiðingar frestunaráráttu auk þess sem þátttakendur fræðast um áhrifaríkar leiðir til að takast á við kvíða og frestunaráráttu með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM).

Hugræn atferlismeðferð er áhrifarík og gagnreynd sálfræðinálgun þar sem við lærum að takast á við erfiðar tilfinningar á borð við kvíða, reiði og depurð með lausnamiðuðum aðferðum sem allir geta lært að nota í daglegu lífi. 

Helena Jónsdóttir er klínískur sálfræðingur sem sérhæfir sig í meðferð kvíða, streitu, og þunglyndis með aðferðum HAM. Helena starfaði um árabil sem sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og á eigin stofu og hefur hún síðasta árið sinnt klínískri vinnu á eigin stofu á Ísafirði ásamt því að halda vinsæl námskeið og fyrirlestra víðsvegar á Vestfjörðum.