26 mar 2019

Opið hús 2019

Opið hús í Menntaskólanum á Ísafirði verður þriðjudaginn 26. mars kl. 17-19. Á opna húsinu verður námsframboðið og skólastarfið kynnt, boðið verður upp á skipulagðar skoðunarferðir um húsakynni skólans og skemmtilegur ratleikur verður í gangi þar sem veglegt páskaegg er í vinning. Allir velkomnir.