Áfangalýsing:
Í þessum fyrsta áfanga í eðlisfræði fyrir nemendur á náttúruvísindabraut verður farið í grunnatriði aflfræði. Efnisatriðin eru hreyfing í einni vídd, kraftar, vinna, orka, skriðþungi og þrýstingur.
Forkröfur: NÁTV1IN05 og STÆR2VH05
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- SI-einingakerfinu og afleiddum stærðum þess við lausn verkefna.
- Skilgreiningu á massa og þyngd.
- Hreyfingu hlutar í einni vídd.
- Fyrsta, öðru og þriðja lögmáli Newtons.
- Helstu orkuformum og breytingu eins orkuforms í annað.
- Lögmálinu um varðveislu orkunnar.
- Skriðþunga og lögmálinu um varðveislu hans.
- Þrýstingi og lögmáli Arkimedesar um uppdrif.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nota markverða tölustafi með viðeigandi einingu í útreikningum og umrita jöfnur.
- Nota fyrsta, annað og þriðja lögmál Newtons við úrlausn verkefna.
- Sundurliða krafta og reikna krafta sem verka á hluti á hreyfingu.
- Leysa verkefni um varðveislu orkunnar, m.a. um breytingu stöðuorku í hreyfiorku og hreyfiorku í varma.
- Beita lögmálinu um varðveislu skriðþungans.
- Reikna dæmi um þrýsting í lofti og vökva.
- Nota lögmál Arkimedesar til að reikna út uppdrif hluta.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Meta hvort niðurstöður útreikninga séu raunhæfar.
- Draga ályktanir út frá niðurstöðum og gera sér grein fyrir notagildi.
- Skýra fyrir öðrum og ræða um þau eðlisfræðilegu fyrirbæri sem hann hefur kynnst.
- Beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna úr námsefninu.
- Sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu.