Almennt um MÍ
Ágrip af sögu skólans
Menntaskólinn á Ísafirði var stofnaður árið 1970, sem bóknámsskóli með hefðbundnu bekkjakerfi. Hann var þá starfræktur í húsi Gamla barnaskólans á Ísafirði við Aðalstræti. Skólinn tók á sig núverandi mynd um 1990 þegar Menntaskólinn, Iðnskóli Ísafjarðar (stofnaður 1905) og húsmæðraskólinn Ósk (stofnaður 1912) sameinuðust í einn skóla, sem þar með tók upp kennslu í ýmsum verknámsgreinum auk bóknáms til stúdentsprófs. Árið 1995 var gerður samningur við sveitarfélögin á Vestfjörðum um stofnun Framhaldsskóla Vestfjarða og var skólinn starfræktur undir því heiti til ársins 2000 þegar samþykkt var að færa nafn hans til fyrra horfs. Menntaskólinn á Ísafirði hefur því endurheimt sitt upprunalega heiti, þó að starfsemi hans hafi mikið breyst frá því hann var stofnaður.
Sérstaða
Menntaskólinn á Ísafirði er staðsettur í fögru umhverfi í höfuðstað Vestfjarða. Skólinn er af heppilegri stærð þannig að nemendur hverfa ekki í fjöldann. Lögð er áhersla á persónuleg samskipti við nemendur, heimilislegt andrúmsloft, góða kennslu, leiðsögn og námsráðgjöf. Skólinn er vel búinn tölvum og í öllum skólanum er þráðlaust tölvukerfi. Sífellt fleiri áfangar eru nú skipulagðir með hliðsjón af tölvustuddri kennslu með samskiptakerfi á netinu er nefnist Námskjárinn. Húsakynni skólans eru björt og rúmgóð og öll á einni lóð, þar á meðal nýlegt og vel búið verknámshús fyrir málmiðngreinar og vélstjórnarbraut. Einnig er góð aðstaða fyrir rafiðngreinar og nú og fullbúin aðstaða er fyrir nám í húsasmíði og grunndeild hár- og snyrtigreina. Bókasafnið er til fyrirmyndar með góðri lestrar- og tölvuaðstöðu. Stórt og glæsilegt íþróttahús er fast við skólann. Falleg útivistarsvæði eru á næstu grösum og stutt er í skíðalandið. Menntaskólinn á Ísafirði býður upp á fjölbreytt nám þar sem bæði er tekið mið af þörfum einstaklingsins og samfélagsins. Nú stunda á fjórða hundrað nemendur nám við skólann á bóknáms-, verknáms- og starfsnámsbrautum. Skólinn starfar eftir áfangakerfi. Jafnan er reynt að gæta þess að nám sem lokið er á einhverri braut skólans nýtist þótt skipt sé um námsbraut.
Hefðir
Í byrjun haustannar vígja eldri nemendur nýnema inn í skólann á táknrænan hátt. Um kvöldið er hátíðarkvöldverður og Busaball. Í september er farin Nýnemaferð að Núpi í Dýrafirði. Róðrarkeppni er haldinn í september ár hvert. Þar etja kappi nemendur, kennarar og jafnvel foreldrar menntaskólanema.
Boðið er upp á sólarkaffi og rjómapönnukökur á sal síðasta fimmtudag janúarmánaðar en sólin skín í fyrsta sinn á ný á glugga skólans 25. janúar, eftir meira en tveggja mánaða fjarveru handan fjalla. Í mars er haldin sérstök lista- og menningarvika í umsjá nemenda skólans, nefnd Sólrisuhátíð og hefur verið fastur liður í menningarlífi bæjarins árlega síðan 1975. Leikhópur skólans setur upp leikrit í fullri lengd og útvarpsstöðin MÍ-flugan er rekin á Sólrisuhátíðinni. Í þeirri viku er Opið hús fyrir foreldra og íbúa svæðisins. Sérstök kynning er þá fyrir efstu bekki grunnskólanema á svæðinu.
Tónlistarstórhátíðin Menntstokk er haldin í lok vorannar. Þá koma á svið vinsælustu og stærstu hljómsveitir fjórðungsins. Daginn fyrir síðasta kennsludag bjóða útskriftarnemar kennurum sínum og starfsfólki skólans til mikillar veislu á kennarastofunni. Síðasta kennsludag hverrar annar dimittera útskriftarnemendur. Þeir taka daginn snemma og sækja kennara sína heim á leið sinni til morgunverðar hjá skólameistara. Gert er hlé á kennslu þennan dag meðan þriðjaársnemar afhenda útskriftarnemum borða með spakmælum og láta þá leysa þrautir. Cloaca er þá gefin út þar sem nemendur og starfsfólk skólans eru sýnd í spéspegli. Nemendur standa fyrir sérstakri útskriftarhátíð með fjölskyldum sínum, starfsfólki skólans og afmælisárgöngum. Haldinn er sameiginlegur kvöldverður með dansleik á eftir.
Heimavist og mötuneyti
Heimavist og mötuneyti eru sambyggð bóknámshúsinu. Á heimavist eru 10 einstaklingsherbergi með sturtu og snyrtingu, þar af tvö sem geta verið tveggja manna og 24 einstaklingsherbergi með sameiginlegu baði og salerni fyrir hver sex herbergi. Við skólann er mjög gott mötuneyti sem er vel nýtt af nemendum og starfsliði skólan
