Áfangalýsing
Í áfanganum er áhersla lögð á skilning (hlustun - lestur), talað mál (frásögn- samskipti) og ritun. Nemendur lesa smásögur og vinna verkefni úr þeim. Hraðilesið efni er valið við hæfi nemenda og enskt talmál æft m.a. í tengslum við lestrarefni. Skriflegi þáttúrinn er þjálfaður með fjölbreyttum æfingum í tengslum við þá efnisflokka sem unnið er með.
Forkröfur: ENSK1GR05 eða hæfniseinkunn B úr grunnskóla
Markmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- daglegu máli, þ.m.t. helstu framburðareinkennum enskrar tungu.
- kvikmyndum á stöðluðum mállýskum.
- texta í greinum og samtímabókmenntum.
- og geta tekið þátt í daglegum samskiptum við þá sem hafa enskuna að móðurmáli.
- orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa og skilja texta í greinum í dagblöðum, tímaritum og á neti.
- haga orðum sínum í samræmi við aðstæður (ímyndaðar eða raunverulegar) t.d. í leik og spunaverkefnum og leysa ýmis mál í samræmi við það.
- skrifa texta frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín. Jafnt ljóð, leiktexta, sögu - sem hefðbundinn texta.
- skrifa ritgerðir, kynningar, gagnrýni og margs konar texta þar sem þeim ritunarhefðum er fylgt sem við eiga í hverju tilviki.
- að tjá sig munnlega og skriflega á skýran og áheyrilegan hátt um efni sem tengist áhugasviði hans.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki.
- leysa ýmis mál sem upp koma í samskiptum og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður.
- tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt.
- taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt.
- eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum.
- tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt og beita tungumálinu af tiltölulega mikilli nákvæmni við margs konar aðstæður.
- geta útskýrt sjónarmið varðandi efni sem er ofarlega á baugi og rakið ólík sjónarmið með og á móti.
- skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín.
- skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig.