Áfangalýsing:
Í þessum áfanga verður kennd akademísk skrift, lestur og aðferðir við akademísk vinnubrögð í Ensku. Lögð er áhersla á að auka formlegan orðaforða sem undirbúning fyrir framhaldsnám á háskólastigi og atvinnulíf og nemendur fá tækifæri til að þjálfa akademísk vinnubrögð sem eykur forskot í háskólanámi.
Forkröfur: ENSK3FO05 eða ENSK3YN05
Markmið:
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu á:
- stöðlum við ritgerðarsmíð.
- ýmsum akademískum greinum.
- akademískum vinnubrögðum.
- heimildaleit og heimildanotkun.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa akademískar greinar.
- vinna úr akademískum textum.
- leita sér upplýsinga og nýta sér heimildir samkvæmt reglum um notkun heimilda.
- skrifa formlega ritgerð með inngangi með efnisyrðingu, meginmáli og lokaorðum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni til að:
- nýta sér fræðitexta og leggja gagnrýnið mat á hann.
- vinna með fræðitexta og annað efni í háskóla.