Áfangalýsing:
Í áfanganum er fjallað um grunnhugtök málfræði, ritunar og bókmenntagreiningar. Nemendur þjálfast í að lesa ýmiss konar texta, jafnt bókmennta- og fræðitexta og greina þá. Þjálfuð verður ritun ólíkra texta, s.s. persónulegra, skapandi og formlegra. Rifjuð verða upp helstu málfræðihugtök og áhersla lögð á að nemendur læri að byggja upp texta og skipta honum í málsgreinar og efnisgreinar. Þá verða nemendur þjálfaðir í því að flytja mál sitt fyrir framan hóp. Nemendur velja sér skáldsögu í samráði við kennara, lesa hana og skrifa bókmenntaritgerð.
Forkröfur: ÍSLE1LR05 eða hæfniseinkunn B úr grunnskóla
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli.
- grunnhugtökum í bókmenntafræði.
- grundvallarvinnubrögðum við skrif ýmiss konar ritsmíða.
- nauðsyn þess að kunna góð skil á íslensku máli og vanda mál sitt í ræðu og riti.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa sér til gagns og gamans fræðitexta og bókmenntaverk og fjalla um inntak þeirra.
- rita ólíkar tegundir ritsmíða þar sem hann beitir gagnrýnni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt.
- nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða.
- draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum.
- nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til þess að efla eigin málfærni.
- standa fyrir framan hóp og flytja mál sitt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna ólík verkefni í tengslum við námsefnið og sýna tilbrigði í málnotkun.
- styrkja eigin málfærni og nám í erlendum tungumálum.
- beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti.
- taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu.