Áfangalýsing:
Nemendur kynnast norrænni goðafræði og hugmyndaheimi norrænna manna til forna. Enn fremur þróun tungumálsins. Þeir lesa ólíka texta frá ýmsum tímabilum. Nemendur fá þjálfun í munnlegri tjáningu og ritun. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í úrvinnslu heimilda um sérhæft efni.
Forkröfur: ÍSLE2BR05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fornum hugmyndaheimi norrænna manna, norrænum goðum og sögum af þeim.
- sögu íslenskrar tungu frá upphafi til okkar daga, einkennum hennar og tengslum við önnur tungumál.
- mikilvægi vandaðra vinnubragða við úrvinnslu heimilda.
- fjölbreyttum tegundum texta.
- hugtökum í bókmenntafræði og bragfræði í umfjöllun um bókmenntir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota fræðibækur og fræðigreinar við gerð heimildaritgerða og verkefna.
- vitna í heimildir, vísa til þeirra og skrá á viðeigandi hátt.
- nota bókmenntafræðileg hugtök við greiningu og túlkun.
- tjá skoðanir sínar á námsefninu með skipulögðum og rökstuddum hætti.
- lesa sér til gagns og gamans mismunandi tegundir texta og fjalla um inntak þeirra.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leggja mat á gildi heimilda og vinna úr þeim með skipulögðum hætti.
- greina og túlka bókmenntatexta og færa rök fyrir skoðunum sínum jafnt munnlega sem skriflega.
- skrifa vandaðan texta á góðu og blæbrigðaríku máli.
- vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra