Áfangalýsing:
Í áfanganum læra nemendur um mismunandi stílbrögð í ritlist auk þess sem þeir setja saman eigin texta undir leiðsögn kennara og rýna í verk annarra. Unnið er að því að auka bókmenntalegt læsi og sköpunargáfu með það að markmiði að koma afurð sinni á framfæri. Lögð er áhersla á að efla færni nemandans til að rýna í eigin verk og annarra og gera hann hæfari til allra handa ritsmíða, hvort heldur hagnýtra eða listrænna. Að áfanganum loknum ætti nemandinn að hafa öðlast aukið sjálfstraust á sviði sköpunar og læsis sem gerir honum kleift að vinna sjálfstætt að sinni list. Í lok áfangans skilar nemandi sjálfstæðu verkefni í skapandi skrifum.
Forkröfur: ÍSLE2MG05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mismunandi stílbrögðum í ritlist.
- mismunandi aðferðum í uppbyggingu og framsetningu ritsmíða.
- ólíkum miðlunarleiðum til að koma verkum á framfæri.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa mismunandi bókmenntir með það fyrir augum að efla eigin stílfærni.
- greina á milli mismunandi stíla og bókmenntaforma.
- greina þá þræði sem liggja á milli ólíkra bókmenntaforma.
- skrifa mismunandi stíla eftir fyrirmælum kennara.
- lesa verk annarra með gagnrýnu hugarfari hvað varðar málfar og framsetningu.
- flytja eigið verk í áheyrn annarra.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leita sér innblásturs í mismunandi bókmenntagerðum.
- sýna næmi fyrir vel unnum texta.
- fullvinna eigið ritverk.
- leggja gagnrýnið og uppbyggilegt mat á verk annarra.
- koma eigin verki á framfæri.