Áfangalýsing:
Áfanginn er sameiginlegur lokaverkefnisáfangi allra námsbrauta. Í þessum áfanga vinnur hver nemandi að sínu rannsóknarverkefni að eigin vali. Gert er ráð fyrir að nemandinn hafi öðlast grundvallar þekkingu í vísindalegum vinnubrögðum, heiðvirðri og vandaðri heimildanotkun ásamt því að þekkja helstu rannsóknaraðferðir í náttúruvísindum, félagsvísindum og hugvísindum.
Nemendur þurfa að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum, virkni, frumkvæði og þjálfa skipulagshæfileika sína, enda skipuleggja þeir vinnu sína sjálfir undir almennri verkstjórn kennara. Nemendur ákveða viðfangsefnin í samráði við kennara í viðkomandi námsgrein.
Áfanganum er ætlað að skerpa undirbúning nemenda fyrir háskólanám, sérstaklega hvað varðar leikni og hæfni til að afla áreiðanlegra gagna, vinna úr þeim og koma niðurstöðum sínum á framfæri. Í áfanganum fá nemendur tækifæri til að draga saman reynslu og fyrra nám í verkefnavinnu og að velja sér nýtt svið til þekkingaröflunar í samstarfi við fræðasetur eða atvinnulífið.
Hægt er að ljúka verkefnum á ýmsan hátt, s.s. í formi heimildaritgerðar, rannsóknarskýrslu, vefsíðu, heimildamyndar, fullunnar afurðar eða tímaritsgreinar. Afrakstur allra lokaverkefna verður kynntur á opnu málþingi og sýningu í lok annar.
Forkröfur: Að nemandi sé á síðustu eða næst síðustu önn í námi.
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim viðfangsefnum sem hann velur sér að fjalla um í áfanganum.
- hvernig helstu íslensk og erlend gagnasöfn eru uppbyggð undirbúningi verkefnavinnu.
- raunhæfri markmiðssetningu og afmörkun viðfangsefna.
- samskiptum og upplýsingagjöf milli samstarfsaðila.
- símati á eigin framgangi verkefnavinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita viðurkenndum aðferðum í heimildaleit og öflun frumgagna.
- vinna úr heimildum og setja þær fram á agaðan og viðurkenndan hátt.
- setja gögn fram á hnitmiðaðan og skýran hátt samkvæmt verkáætlun.
- kynna eigin niðurstöður fyrir öðrum.
- safna gögnum í rannsókn, vinna úr þeim, og kynna niðurstöður rannsóknar fyrir samnemendum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja rannsóknaraðferðir og tjáningarform sem hæfa viðfangsefninu.
- leggja mat á heimildir, gagnrýna þær og draga af þeim ályktanir.
- beita fræðilegu sjónarhorni við eigin gagnavinnslu og gagnaöflun.
- tjá sig og miðla þekkingu, hugmyndum og skoðunum fyrir framan hóp, bregðast við gagnrýni og sýna útsjónarsemi.