Áfangalýsing:
Áfanginn miðar að því að nemandinn efli næmi sitt fyrir fjarvídd og myndbyggingu á tvívíðum fleti og dýpki skilning á grundvallaratriðum myndbyggingar, formfræði og hönnunar. Í áfanganum er skynjun á formum í umhverfinu efld og þrívíð tilfinning skerpt. Nemandinn gerir tilraunir með form, línur, fleti og áferð til að rannsaka ólíka myndbyggingu og læra undurstöðuatriði í fjarvíddarteikningu þar sem umhverfið er skoðað og útfært í fjarvídd. Áhersla lögð á að nemandinn prófi og kynnist mismunandi miðlum í vinnslu myndverka.
Forkröfur: SJÓN1LF05
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- forsendum myndbyggingar og fjarvíddar.
- grundvallarreglum formfræði og fjarvíddar.
- hlutverki forma, lína, lita og áferðar í myndverkum.
- hvaða merkingu og áhrif ólík form og línur hafa í myndverki.
- hvernig mismunandi miðlar og aðferðir hafa áhrif á útkomu myndverks.
- hvernig myndbygging hefur áhrif á útkomu myndverks.
- fagorðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:
- teikna hluti í réttum hlutföllum í fjarvídd í einum, tveimur og þremur hvarfpunktum.
- skyggja hluti út frá ákveðnu ljóshorni.
- nota myndbyggingu, formfræði og fjarvídd í myndverki til að ná ákveðnum áhrifum þannig að gott jafnvægi sé milli einstakra þátta.
- vinna með mismunandi miðla og nota mismunandi aðferðir við gerð myndverka.
- skilgreina verk sín og tengja þau við fagorð og fjalla um þau.
- útfæra og setja fram verkefni sín á frumlegan, skapandi og skipulegan máta.
- beita táknfræðilegum rökum við umræðu um mögulega merkingu óhlutbundinna mynda.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta formfræði, fjarvídd og myndbyggingu í sköpun myndverka.
- vinna á persónulegan hátt og þróa eigin hugmyndir.
- fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt með vísan í grundvallaratriði myndbyggingar og fjarvíddar.
- meta myndbyggingarlega þætti í myndverkum annarra, t.d. fjölmiðlaefni, kvikmyndir, listaverk o.fl..