Áfangalýsing:
Markmiðið er að skoða hugmyndir um galdur og galdra fá upphafi tímans og fram til nútímans. Hugtakið galdur verður krufið, hvernig hann birtist á ólíkum tímum í ólíkum samfélögum. Galdrar verður skoðaðir m.a. út frá trúarhugmyndum, þjóðtrú, lækningum, hversdagslífi og afþreyingu. Galdraofsóknir fyrri tíma verða skoðaðar, ástæður þeirra og rýnt í mögulegar skýringar. Ýmis viðhorf til galdra í nútímanum verða könnuð og hvernig hugmyndin um galdra hefur breyst, þ.e. frá því að galdrar voru álitnir hættulegt og eyðandi fyrirbæri yfir í að verða hluti af afþreyingar- og skemmtanaiðnaði dagsins í dag. Rannsóknir í mannfræði, sagnfræði, þjóðfræði og félagsfræði verða lagðar til grundvallar. Einnig bókmenntir, sjónvarpsþættir og kvikmyndir.
Forkröfur: SAGA2MÍ05
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- menningarþættinum/hugtakinu galdri og hlutverki hans í mismunandi samfélögum.
- ólíkum skilgreiningum á galdri.
- mismunandi viðhorfum til galdra á ólíkum tímum.
- mismunandi nálgun fræðigreina á galdur.
- þætti galdra í afþreyingu og poppmenningu nútímans.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina helstu einkenni galdra og hvernig þeir endurspegla viðhorf og átrúnað í samfélögum.
- meta ólík viðhorf á ólíkum tímum þegar kemur að göldrum.
- nýta sér texta og rannsóknir ýmissa fræðigreina til að afla sér upplýsinga um galdra í
samfélögum. - vinna sjálfstætt og á gagnrýninn hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- mynda sér skoðanir á viðfangsefninu og geti rökstutt þær.
- beita gagnrýnni hugsun og greina orsakasamhengi atburða.
- setja sjálfan sig í samhengi við söguna sem þátttakandi og skoðandi.