Áfangalýsing
Í áfanganum er unnið með liðun, þáttun, jöfnu beinnar línu, 2. stigs jöfnur, fleygboga og talningarfræði, margliður og ójöfnur, veldi og rætur, föll, gröf og hagnýtingu hornafalla.
Forkröfur: STÆR2GS05
Markmið
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- deilanleika og frumþáttun talna, lotutugabrotum, náttúrulegum tölum, heilum tölum, ræðum tölum, rauntölum og bilum á rauntalnaásnum.
- undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og algildi.
- jöfnum af fyrsta og öðru stigi og ójöfnum.
- veldum, rótum og veldareglum.
- margliðum; þáttun, núllstöðvum og deilingu þeirra.
- beinum línum og fleygbogum og skurðpunktum grafa.
- föllum og hnitakerfi.
- hagnýtingu hornafalla.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leysa jöfnur og ójöfnur.
- beita veldareglum og meðhöndla rætur og brotna veldisvísa.
- finna núllstöðvar margliða, deila margliðum og þátta þær.
- meðhöndla föll og gröf.
- hagnýta hornaföll.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta sett sig inn í og túlkað útskýringar og röksemdir annarra af virðingu.
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt.
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna.
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni.
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra. þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur.