Áfangalýsing
Í áfanganum er unnið með stofnföll falla, óákveðið og ákveðið heildi og heildunaraðferðir. Deildajöfnur af fyrsta stigi eru skoðaðar, lausnir þeirra og hagnýting.
Forkröfur: STÆR3DF05
Markmið
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- tengslum deildunar og heildunar.
- stofnföllum og óákveðnu heildi.
- ákveðnu heildi og flatarmáli undir ferli falls.
- tölulegri nálgun heildis.
- andhverfum hornafalla og afleiðum þeirra.
- hlutheildun, heildun með innsetningu og heildun ræðra falla.
- rúmmáli snúða þegar flatarmáli er snúið um ása hnitakerfisins.
- deildajöfnum af fyrsta stigi og hagnýtingu þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:
- finna stofnföll og flatarmál með heildun.
- beita tölulegri nálgun á heildi.
- túlka ákveðin heildi sem flatarmál eða summu flatarmála.
- nota diffurreglur fyrir andhverf hornaföll.
- heilda með aðferðum eins og innsetningu, hlutheildun og liðun í stofnbrot og velja heildunaraðferð við hæfi.
- ginna rúmmál snúða með heildun.
- leysa fyrsta stigs deildarjöfnur.
- nota fyrsta stigs deildajöfnur til að leysa hagnýt dæmi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstutt aðferðir sínar.
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndar sínar og verk. skilmerkilega á mæltu máli og myndrænt.
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna og valið aðferð við hæfi.
- fylgja röksemdarfærslu í mæltu máli og texta og rakið sannanir í námsefninu.