Áfangalýsing
Efnissvið áfangans eru mengjafræði, rökfræði, talningarfræði, reiknirit og talnafræði. Náttúrlegar tölur eru sameiginlegt viðfangsefni þessara sviða. Helstu efnisatriði eru: Mengi, vensl, varpanir og helstu hugtök varðandi þessi atriði, talningarfræði, rökreglur, mótdæmi, rakning, þrepun, reiknirit, raðir, jafnmunaröð, jafnhlutfallaröð, deilanleiki talna og frumtölur, sætiskerfi með öðrum grunntölum en 10, leifaflokkar og aðgerðir með leifaflokkum.
Forkröfur: STÆR2GS05
Markmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu mengjahugtökum, fjöldatölum og hugtakinu samstétta mengi.
- venslum og vörpunum.
- aðferðum úr talningarfræði.
- helstu hugtökum og aðferðum stærðfræðilegrar rökfræði.
- gerð og notkun reiknirita.
- mengjahugtakinu og mengjareikningi.
- undirstöðuhugtökum talnafræðinnar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita helstu reglum um mengjaaðgerðir.
- reikna fjölda umraðan og samantekta.
- nota þrepun til að sannreyna ályktanir út frá þrepunarskilgreiningum.
- finna minnsta samfeldi bæði með frumþáttun og reikniriti Evklíðs.
- umrita tölur í önnur talnakerfi en tugakerfið.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra helsut sannanir sem koma fyrir í námsefni hans.
- fella stærðfræðileg viðfangsefni inn í þá þekkingu og færni sem hann býr yfir.
- teikna skýringarmyndir til að glöggva sig á vandamálum sem fyrir liggja.
- nýta stærðfræðileg líkön til að fást við aðrar fræðigreinar.
- skilja og taka þátt í að hann stærðfræðileg líkön sem sniðin eru að ákveðnum viðfangsefnum.
- skilja að það sé ekki sjálfsagt að verkefni hafi lausnir, hvorki einföld jafna né stór viðfangsefni.
- skilja hvaða eiginleikar talna eru háðir talnarituninni og hverjir ekki.