Áfangalýsing:
Áfanginn er hluti af almennum kjarna á stúdentsprófsbrautum. Í áfanganum er fjallað um umhverfismál og áhrif einstaklinga og samfélag á sjálfbæra þróun. Nemendur kynnast helstu umhverfisvandamálum og því hvað móti tengsl manns og náttúru. Nærumhverfið skoðað út frá landfræðilegum staðháttum og náttúrufari. Áherslan í áfanganum er á tengsl og samspil einstaklingsins og nærumhverfisins annars vegar og samspil hins íslenska samfélags og alþjóðasamfélagsins hins vegar. Ekkert lokapróf er í áfanganum heldur er ætlast til að nemendur vinni að verkefnum jafn og þétt í gegnum önnina.
Forkröfur: FÉLV1IF05 og NÁTV1IN05
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- helstu umhverfismálum sem eru í brennidepli á hverjum tíma.
- fjölbreyttum leiðum einstaklingsins til vistvænni lifnaðarhátta.
- áhrifum mannsins á umhverfi sitt, orsökum og afleiðingum og ábyrgð einstaklingsins.
- sögu svæðisins í ljósi samspils manns og umhverfis.
- ólíkum atvinnuháttum í gegnum aldirnar og áhrifum þeirra á byggðaþróun og nýtingu náttúruauðlinda.
- tengslum og samspili fortíðar og nútíðar.
- mikilvægi gagnrýninnar hugsunar.
- vinnu með fjölbreyttar heimildir og komi vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan hátt.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina hagsmuni varðandi ágreining í umhverfismálum.
- að afla sér upplýsinga um umhverfismál í nærumhverfi og heimfæra á aðstæður í víðara samhengi.
- nýta fjölbreyttar heimildir til að tileinka sér náttúru og sögu svæðisins.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- mynda sér skoðanir í umhverfismálum og geti rökstutt þær.
- geta útskýrt áhrif mannlegrar breytni á nærumhverfið.
- beita gagnrýnni hugsun og greina orsakasamhengi atburða.
- setja sjálfan sig í samhengi sögunnar sem þátttakandi og skoðandi.