Áfangalýsing:
Helstu viðfangsefni eru: Auðleyst og torleyst sölt, sýrur og basar, jafnvægi í sýru- og basalausnum, pH og hlutleysing, stuðpúðalausnir, títrun. Lögð er áhersla á að kynna nemendum eðli og eiginleika mikilvægra frumefna og efnasambanda, framleiðslu þeirra og notagildi. Lögð er mikil áhersla á tilraunir og skal í sérhverju tilfelli skila fullgerðri skýrslu.
Forkröfur: EFNA3EJ05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- efnafræði sýra og basa.
- jafnvægi hjá daufum sýrum og bösum.
- eiginleikum og notagildi stuðpúða.
- myndun salta og leysnimargfeldi.
- efnisfræði málma og málmleysingja.
- lotubundnir eiginleikar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna pH gildi lausna.
- beita útreikningum er tengjast sýrum og bösum til að finna styrk og jafnvægispunkt.
- reikna leysnimargfeldi.
- útskýra lotubundna eiginleika frumefna.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- auka skilning sinn á efnafræðilegum viðfangsefnum og samtengingu þeirra við aðrar fræðigreinar.
- geta reiknað út pH í lausn með sýru-basa hvarfi.
- finna mettunarmörk tiltekinna efnasambanda í lausn.
- skilja notagildi efnafræði til að hafa áhrif á ýmis atriði í umhverfinu til góðs og ills.
- takast á við frekara nám á sviði ólífrænnar efnafræði, verkfræði.