Náms- og starfsráðgjöf

Náms- og starfsráðgjöf Menntaskólans á Ísafirði

 

Námsráðgjafi MÍ 

Erna Sigrún Jónsdóttir - erna@misa.is 

 

Hægt er að bóka tíma rafrænt:

SMELLTU HÉR 

 

Hlutverk námsráðgjafa Menntaskólans á Ísafirði er að standa vörð um velferð nemenda og veita nemendum aðstoð í málum sem tengjast námi, náms- og starfsvali og persónulegum málum. 

Námsráðgjafi er málsvari og trúnaðarmaður nemenda og er bundinn þagnarskyldu um einkamál þeirra. 

Nemendur, foreldrar/forráðamenn og kennarar geta leitað til námsráðgjafa og fengið ráðgjöf og aðstoð við ýmis mál. 

 Námsráðgjafi 

  • veitir upplýsingar um uppbyggingu náms í MÍ 
  • veitir ráðgjöf varðandi náms- og starfsval 
  • veitir upplýsingar um nám og störf 
  • veitir ráðgjöf vegna námserfiðleika  
  • veitir aðstoð vegna hljóðbóka og annarrar tækni sem nýtist í námi 
  • veitir ráðgjöf vegna árangursríkra vinnubragða í námi 
  • aðstoðar nemendur við að skipuleggja nám sitt 
  • leiðbeinir við gerð ferilskrár og atvinnuumsókna 
  • aðstoðar nemendur við úrlausnir persónulegra mála
  • hefur milligöngu um skólahjúkrun

 

Gagnabanki náms- og starfsráðgjafar