Skólaráð
Skólaráð Menntaskólans á Ísafirði 2022-2023 skipa:
Heiðrún Tryggvadóttir - starfandi skólameistari
Hildur Halldórsdóttir - aðstoðarskólameistari
Martha Kristín Pálmadóttir - áfangastjóri
Sigurður Óskar Óskarsson - fulltrúi kennara
Svavar Þór Guðmundsson - fulltrúi kennara
Viktoría Rós Þórðardóttir formaður Nemendafélags MÍ - fulltrúi nemenda
Sigrún Aðalheiður Aradóttir formaður leikfélags MÍ- fulltrúi nemenda
Skólaráð skal starfa við framhaldsskóla samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá árinu 2008. Um skólaráð segir í lögunum.
7. gr. Skólaráð.
Skólaráð skal vera skólameistara til samráðs og aðstoðar. Skólameistari er oddviti skólaráðs sem auk hans skal skipað staðgengli hans og fulltrúum kennara og nemenda. Heimilt er að setja í reglugerð nánari ákvæði um skipan skólaráðs, verksvið þess og starfshætti.
Reglugerð um skólaráð við framhaldsskóla, 140/1997 um skipan og hlutverk skólaráðs hefur verið felld úr gildi.