Áfangalýsing:
Í þessum áfanga er fjallað um frumkvöðla félagsfræðinnar og kynntar helstu kenningar greinarinnar. Samfélagið er skoðað í ljósi mismunandi kenninga og nokkrar þekktar rannsóknir innan félagsfræði skoðaðar. Farið er yfir vítt svið félagsfræðinnar og nemendur þjálfaðir í að beita félagsfræðilegu innsæi við túlkun á samfélagslegum málefnum. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist dýpri skilning á hugtökum sem kynnt eru í inngangi að félagsfræði og setji þau í fræðilegt samhengi. Meginmarkmið áfangans er að nemendur öðlist dýpri skilning á hugtökum, kenningum og vinnubrögðum félagsfræðinnar og geti beitt þeim við túlkun og greiningu á samfélaginu, bæði almennt og á tiltekin viðfangsefni.
Forkröfur: FÉLV1IF05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu frumkvöðlum félagsfræðinnar og geti lýst framlagi þeirra til greinarinnar.
- helstu kenningum innan félagsfræðinnar.
- aðferðafræði félagsfræðinnar.
- hugtökum á borð við félagslega lagskiptingu, frávik, kynhlutverk og sjálfsmynd.
- orsökum og afleiðingum fíkniefnaneyslu á einstakling og samfélag.
- áhrifum fjölmiðla í samfélaginu.
- táknrænum samskiptum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita félagsfræðikenningum til að skoða samfélagsleg málefni.
- beita félagsfræðilegu innsæi.
- fjalla um og bera saman kenningar.
- útskýra áhrif kenninga á samfélagsleg viðfangsefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
- geta tekið þátt í umræðum um samfélagsleg málefni og myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýnni hugsun
- afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér þær
- geta framkvæmt einfalda rannsókn og áttað sig á helstu niðurstöðum
- geta beitt öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á náminu og unnið í samvinnu við aðra
- geta hagnýtt netið til að afla sér þekkingar um félagsfræðileg viðfangsefni