Áfangalýsing:
Í mannfræði er maðurinn skoðaður bæði sem dýrategund og félagsvera. Í áfanganum verður mannfræði kynnt sem fræðigrein. Nemendur munu kynnast undirflokkum mannfræðinnar. Nemendur munu kynna sér helstu rannsóknaraðferð mannfræðinnar, þátttökuathugun, og munu fá að spreyta sig á aðferðinni með því að vinna einfalda rannsókn sem felur í sér þátttökuathugun. Fjallað verður um þróunarhugtakið í tengslum við þróun mannsins og þróun samfélaga og helstu gagnrýni á þróunarhugmyndir. Nemendur munu fá kynningu á ýmsum menningarheimum og eiga að geta tileinkað sér afstæðishyggju við skoðun á þeim. Í áfanganum verður meðal annars fjallað um ólík fjölskylduform, sifjakerfi, hagkerfi, trúarhugmyndir, kynhlutverk og lagskiptingu.
Forkröfur: FÉLA2KS05
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- mannfræði sem fræðigrein og undirflokkum hennar.
- sögu mannfræðinnar.
- þátttökuathugun sem rannsóknaraðferð.
- afstæðishyggju sem sjónarhorni í vísindum.
- helstu hugtökum mannfræðinnar.
- völdum menningarheimum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- miðla þekkingu sinni á ólíkum menningarheimum í ræðu og riti.
- framkvæma þátttökuathugun.
- kynna rannsóknarniðurstöður sínar á viðeigandi hátt.
- leita sér upplýsinga í mannfræði, greina þær og setja í fræðilegt samhengi.
- nýta fræðilegan texta um mannfræði á íslensku og ensku.
- leggja gagnrýnið mat á þróunarhugtakið, bæði hvað varðar líffræðilega og menningarlega
þróun.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita afstæðishyggju við mat á ólíkum menningarheimum.
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum, draga ályktanir af rannsóknarniðustöðum og rökstyðja
skoðanir sínar. - ræða siðferðileg álitamál tengdum notkun þátttökuathugunar sem rannsóknaraðferð.
- leggja gagnrýnið mat á eigin rannsóknarniðurstöður og annarra.