Áfangalýsing:
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist fjármálum einstaklinga ásamt réttindum og skyldum einstaklinga á vinnumarkaði. Markmið áfangans er að nemendur verði læsir á eigin fjármál og geri sér grein fyrir mikilvægi fjármálalæsis í daglegu lífi. Fjallað verðum um fjármál einstaklinga í víðum skilningi. Þ.e. helstu fjárhagslegu ákvarðanir einstaklinga, svo sem lántaka, vextir og verðbólga, sparnaður, ráðstöfun tekna og laun og launatengd gjöld.
Forkröfur: Engar
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- útgjöldum heimila og helstu kostnaðarliði.
- launum og launatengdum gjöldum.
- lántöku, kostnaði, afborgunum og vaxtaútreikningi lána.
- helstu sparnaðarleiðum og vaxtaútreikningi sparnaðar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:
- koma auga á helstu útgjaldaliði heimila og setja upp greiðsluáætlun.
- lesa launaseðil og hafa skilning á launatengdum gjöldum.
- reikna og skilja vaxtaútreikning, bæði innláns og útlánsvexti.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta vitnað í helstu réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
- nýtt sér þekkingu sína í fjármálalæsi í daglegri fjármálaumræðu út frá faglegu sjónarmiði.
- greina frá helstu lánakjörum og sparnaðarleiðum hér á landi og tengja við þróun efnahagsmála.
- aflað sér frekari þekkingu um fjármál t.d. með því að nýta sér internetið sem upplýsingamiðil.