Áfangalýsing:
Áfanginn á að gefa góða undirstöðu til notkunar og þekkingar á frönsku sem tungumáli og frönskumælandi menningu, samfélagi og sögu. Námsefnið byggir á áföngunum FRAN1AG05 og FRAN1AF05. Áfanginn á áfram að örva forvitni nemandans á tungumálum og menningu. Áfanginn á að gefa nemendum möguleika á að þróa fjöltyngi þar sem kunnátta í ólíkum tungumálum starfa saman og styðja hvert annað. Nemendur eru þjálfaðir í lesskilningi, tali, hlustun og ritun.
Mikill áhersla er lögð á að nemendur þjálfist áfram í að nota frönsku og er þeim þætti sinnt bæði með hlustun og talæfingum. Samhliða vinnu með kennslubæklinga og annað skriflegt efni hlusta nemendur reglulega á samtíma útvarpsfréttir á einfaldri frönsku.
Forkröfur: FRAN1AF05
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum þrepsins.
- helsta grundvelli fransks málkerfis: tónfalli, framburði og málfræði.
- einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli.
- almennum sögnum í nútíð, þátíð og framtí.
- ýmsum sviðum franska tungumálsins, samfélagi og sögu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:
- fylgjast með munnlegum og skriflegum frásögnum um nokkuð þekkt efni þar sem tungumálið er skýrt .
- tjá sig á frönsku með góðum framburði.
- setja mælt og ritað mál í samhengi við eigin þekkingu og reynslu.
- nota gagnrýna hugsun.
- nota sér endurgjöf.
- setja franskt samfélag í dag í samhengi við söguna.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- þróa með sér sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu í frönsku.
- taka þátt og fylgjast með í einföldum samræðum, svara og spyrja um þekkt efni.
- tjá sig um frönskumælandi menningu, samfélag og sögu í tengslum og samanburði við umhverfi sitt og daglegt líf.