Áfangalýsing:
Í áfanganum er fjallað um innræn og útræn öfl og sérstök áhersla er lögð á jarðfræði Íslands. Fjallað er um flekarek og heita reiti, jarðskjálfta og brotalínur og landmótun jökla og vatnsfalla og annarra útrænna afla. Farið er í mismunandi gerðir af eldvirkni, mismunandi kvikugerðir og storkubergsmyndanir. Eðli og uppruni mismunandi steinda er skýrður og fjallað sérstaklega um frumsteindir og holufyllingar í íslensku storkubergi. Fjallað er um hraungerðir, flokkun bergs, eldstöðvakerfi, helstu gerðir eldgosa, móbergsmyndanir, dyngjur, jarðvarmasvæði og jarðvarmaleit. Nemendur vinna sjálfstætt og í hópum að lausn verkefna. Áhersla er lögð á tengingu við umhverfi og reynsluheim nemenda.
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- kenningum um landrek, botnrek og flekarek og mismunandi áhrifum eftir gerð flekamarka.
- því helsta sem notað er til að spá fyrir um stóra jarðskjálfta.
- muninum á frumstæðri og þróaðri kviku.
- bergsyrpum og eldstöðvakerfum.
- hvaða þættir hafa áhrif á kvikugerðir og hegðun eldgosa.
- helstu einkennum eldstöðvarkerfa.
- helstu djúpbergsmyndunum og þekkja nokkur dæmi.
- myndun móbergsfjalla ásamt dyngjumyndun.
- hvernig ytri öflin móta umhverfið.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa jarðfræðikort.
- staðsetja flekamörk, gosbelti, þverbrotabelti og möttulstrók landsins.
- hreina helstu storkubergstegundir Íslands og helstu frumsteindir og holufyllingar í storkubergi.
- skoða mismunandi móbergsmyndanir.
- koða áhrif vatns á goshegðun og myndun gosefna.
- skoða bergganga ásamt flestum öðrum djúpbergsmyndunum.
- áætla stærð og staðsetningu jarðskjálfta.
- greina á milli háhita- og lághitasvæða og útskýra nýtingu jarðvarma.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta gagnrýna hugsun og sjálfstæði í vinnubrögðum við lausn verkefna.
- túlka jarðlög og landslag út frá myndun og mótun þeirra.
- tengja jarðfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar.
- afla heimilda, meta þær og nýta á markvissan hátt til að lýsa myndun og mótun á afmörkuðu landsvæði í nánasta umhverfi.