Áfangalýsing:
Í áfanganum, sem er valáfangi í erfðafræði fyrir náttúruvísindabraut, er gerð grein fyrir sögu erfðafræðinnar ásamt grunnþáttum frumu-, sameinda- og stofnerfðafræði. Fjallað verður um Mendelskar og fjölgena erfðir og aðferðir við rannsókn erfðasjúkdóma. Leitast verður við að kynna nýjustu niðurstöður slíkra rannsókna ásamt aðferðafræði og nýtingu erfða- og líftækni.
Forkröfur: LÍFF2LE05
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- sögu og þróun erfðafræðinnar, tæknilega og siðferðilega.
- kenningum Mendels og grunnatriðum erfðafræðinnar t.d. með erfðum mismunandi eingena einkenna í fjölskyldum.
- ferli frumuskiptinga, bæði mítósu og meiósu.
- byggingu og starfsemi erfðaefnis (DNA, RNA, gen og litningar).
- helstu gerðum stökkbreytinga sem verða í erfðaefninu.
- grundvallaratriðum í erfðatækni og líftækni.
- erfðaefni örvera ásamt mismunandi næringarþáttum þeirra og lífsferlum.
- eðli og virkni príona.
- tengslagreiningu og fylgnigreiningu við leit að meingenum og erfðafræðilegri orsök sjúkdóma.
- fjölbreytileika lífvera og þróun.
Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:
- beita grunnhugtökum erfðafræðinnar á skilmerkilegan hátt og í rökrænu samhengi.
- rekja einfaldar og flóknar erfðir í fjölskyldum.
- tengja saman basaröð í DNA við basaröð í RNA og RNA röð við amínósýruröð próteina.
- gera greinarmun á helstu aðferðum við meingenaleit.
- lesa erfðafræðilegar upplýsingar úr máli og myndum frá mismunandi heimildum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í umræðu um erfðafræðileg málefni daglegs lífs á ábyrgan og sjálfstæðan hátt.
- geta tekið rökstudda og gagnrýna afstöðu til erfðarannsókna, erfðatækni, líftækni og annarra erfðafræðilegra málefna.
- finna þekkingu um erfðafræði í ritrýndum heimildum og tengja hana við samfélagslega þætti og umhverfismál.
- geta tekið þátt í umræðu á siðferðislegum álitamálum varðandi söfnun og notkun erfðaefnisupplýsinga.
- geta afla sér enn víðtækari þekkingar á sviði erfðafræðinnar.