Áfangalýsing:
Fjallað verður um stærstu atburði í sögu 20. aldar með sérstakri áherslu á heimsstyrjaldirnar og staðgenglastríð á kalda stríðstímanum. Átökin í Úkraínu verða skoðuð og sett í samhengi við atburði 20. aldar. Einnig verða átökin á Gaza skoðuð í ljósi sögunnar. Lögð er áhersla á orsakir átaka og afleiðingar þeirra. Áhersla er lögð á fjölbreytta og gagnrýna heimildanotkun og sjálfstæð vinnubrögð.
Forkröfur: SAGA2MÍ05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu sögulegum atburðum og átökum á 20. öld.
- hver er sögulegur bakgrunnur átakanna.
- helstu hugtökum sem tengjast atburðunum og átökum.
- ólíkum hugmyndafræðilegum stjórnmálastefnum sem höfðu áhrif á tímabilinu.
- áhrifum átakanna á stöðu heimsmála í dag.
- áhrifum átakanna á samskipti þjóða.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla sér upplýsinga um efni áfangans.
- lesa fræðilega texta á íslensku og ensku og e.t.v. fleiri tungumálum og túlka merkingu þeirra.
- greina orsakasamhengi og að setja efni áfangans í sögulegt samhengi.
- beita gagnrýnni hugsun og meti áreiðanleika heimilda.
- beita sagnfræðilegum aðferðum við úrvinnslu og skráningu heimilda.
- nota ólík miðlunarform til að miðla sögulegu efni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir orsökum átaka á tímabilinu.
- geti ályktað um orsakasamband atburða í víðu sögulegu samhengi.
- koma þekkingu sinni og skilningi á efninu á framfæri með fjölbreyttum hætti.
- geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um efni áfangans.
- geta metið alþjóðleg átök út frá eigin forsendum og skilningi.