Áfangalýsing:
Áfanginn er byrjunaráfangi í sálfræði. Fræðigreinin sálfræði er kynnt nemendum, upphaf hennar og þróun. Helstu kenningar og fræðimenn sálfræðinnar eru skoðaðar. Rannsóknaraðferðir sem notaðar eru í sálfræði eru kynntar fyrir nemendum og nemendur vinna verkefni þar sem þeir spreyta sig á vísindalegum vinnubrögðum sálfræðinnar. Grunnhugtök og sálfræðistefnur eru kynntar og sérstaklega er komið inn á námssálarfræðina og nemendur læra um mismunandi tegundir náms og minnisaðferðir. Sérstaklega er fjallað um samspil á milli hugsunar, hegðunar og tilfinninga. Sjálfsmynd og mannleg samskipti eru skoðuð
Forkröfur: FÉLV1IF05
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- þróun fræðigreinarinnar sálfræði helstu frumkvöðlum í greininni.
- víðfeðmi sálfræðinnar og helstu undirgreinum hennar.
- hvernig sálfræði nýtist í daglegu lífi.
- leiðum sálfræðinnar til að útskýra hugsun, hegðun og tilfinningar manneskjunnar.
- mótunaröflum einstaklinga og hópa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa í og skilja umfjöllun um helstu hugmyndir sem mótað hafa sálfræðina.
- beita algengustu hugtökum sálfræðinnar á skýran og skilmerkilegan máta.
- skoða sína eigin hegðun og annarra út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar.
- skoða eigin hugsun og tilfinningar út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar.
- tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt.
- greina einfaldar leiðir til að breyta hegðun og/eða hugsun sinni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir mótunaráhrifum umhverfis á sjálfan sig og aðra.
- gera sér grein fyrir samspili hegðunar, hugsunar og tilfinninga geta með einföldum hætti.
- yfirfært sálfræðilega þekkingu á eigin sjálfsmynd.
- tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti.
- afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér þau við verkefnavinnu.
- geta skrifað ritgerð upp úr efni tengt sálfræði.