Áfangalýsing:
Í áfanganum verður gefið yfirlit yfir helstu geðraskanir og einkenni þeirra. Farið verður í helstu kenningar um orsakir geðraskana. Rætt verður um ýmsa þætti sem hafa áhrif á geðraskanir, t.d. þátt erfða og taugaboðefna sem og áhættuþætti tengda umhverfi. Nemendur kynnast flokkunarkerfi geðraskana, DSM-V, og fá þjálfun í að nota kerfið til að leita sér upplýsinga um geðraskanir. Nemendur fá kynningu á þeim aðferðum sem helst eru notaðar við rannsóknir á geðröskunum. Fjallað verður um mismunandi meðferðarleiðir og nemendur fá æfingu í að meta meðferðarleiðir og kenningar á gagnrýninn hátt.
Forkröfur: SÁLF2IS05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- DSM-V flokkunarkerfinu.
- helstu flokkum geðraskana.
- einkennum helstu geðraskana helstu meðferðarúrræðum við geðröskunum.
- kenningum um orsakir geðraskana.
- aðstæðum og aðbúnaði geðfatlaðra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina geðraskanir eftir einkennum þeirra í lýsingum á ákveðnum tilfellum.
- lesa fræðilegt efni um geðraskanir á íslensku og ensku sér til gagns.
- setja sig í spor fólks sem á við geðræn vandamál að stríða.
- leita heimilda á sviði afbrigðasálfræði.
- miðla fræðilegu efni tengdu afbrigðasálfræði á áhrifaríkan hátt í ræðu og riti.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta tekið þátt í umræðu um geðraskanir, einkenni þeirra og orsakir og tekið afstöðu til kenninga og álitamála tengdum geðröskunum.
- afla sér upplýsinga um geðraskanir, greina þær og nýta sér þær.
- tileinka sér jákvæð og fordómalaus viðhorf.
- beita öguðum og ábyrgum vinnubrögðum í námi og unnið í samstarfi við aðra.
- auka hæfni sína í að vinna með fagaðilum á sviði geðheilbrigðis og félagsþjónustu.