Áfangalýsing
Í áfanganum er farið í vigra, hornaföll, þríhyrninga, bogamál á hring, jöfnu hrings, fleygboga, keilusnið og sporbauga en einnig er fjallað um hagnýtingu þekkingar á hornaföllum. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist flatarmyndafræði í hnitakerfi og læri að sanna helstu reglur og beita þeim.
Forkröfur: STÆR2JA05
Markmið
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- vigrum, stefnuvigrum, einingarvigrum, samsíða vigrum, þvervigrum og innfeldi.
- hornaföllum, bogamáli og lotu í lotubundnum föllum.
- sínus-, kósínus- og flatarmálsreglunni.
- jöfnu beinnar línu, hrings, sporbaugs, fleygboga og breiðboga.
- stikun hrings og línu og ofanvarp punkts eða vigurs á stefnda línu.
- helstu hornafallajöfnum og sönnunum þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:
- nota reiknireglur fyrir vigurreikning í rétthyrndu hnitakerfi í tvívíðu rúmi.
- geta breytt bogamáli í gráður og gráður í bogamál.
- nota skilgreiningu hornafalla og helstu reglur í hornafallareikningi.
- nota sínus, kósínus og flatarmálsregluna til að finna lengdir, horn og flatarmál í rétthyrndum, hvasshyrndum og gleiðhyrndum þríhyrningi.
- finna lotu, útslag og hliðrun hornafalla og teikna gröf þeirra.
- rita jöfnu línu út frá stikun línu og svo öfugt finna miðju og radíus hrings, sporbaugs, fleygboga eða breiðboga út frá jöfnu þeirra.
- finna jöfnu hrings, sporbaugs og breiðboga út frá gefnum miðpunkti og radíus eða lengd stórás og skammás.
- leysa hornafallajöfnur.
- sanna einfaldar reglur eins og sínus, kósínus og flatarmálsregluna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstutt aðferðir sínar.
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndar sínar og verk skilmerkilega á mæltu máli og myndrænt.
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna og valið aðferð við hæfi.
- fylgja röksemdarfærslu í mæltu máli og texta og rakið sannanir í námsefninu.