Áfangalýsing:
Markmið kennslunnar er að nemendur haldi áfram að æfa sig að skilja rit- og talmál, geti tjáð sig betur skriflega og munnlega í tengslum við kennsluefnið, þekki fleiri reglur í þýskri málfræði og auki orðaforða.
Forkröfur: ÞÝSK1AG05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- flóknari þýskum orðaforða.
- fjölbreyttara hlustunarefni.
- fleiri málfræðireglum.
- fleiri atriðum varðandi menningu, sögu og landafræði þýskumælandi landa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja meira talað mál ef talað er hægt og skýrt.
- lesa lengri texta á þýsku.
- skrifa lengri þýska texta tengda námsefni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- eiga fjölbreyttari samskipti við þýskumælandi fólk á skriflegan og munnlegan hátt sem er metið með verkefnum og prófum.
- afla sér fjölbreyttari upplýsinga með hjálp kennslugagna og upplýsingatækni sem er metið með verkefnum og prófum.