Áfangalýsing:
Í áfanganum fá nemendur æfingu í hlutbundinni forritun og einfaldri leikjaforritun í Python og Arcade / PyGame. Farið er yfir mismunandi ferli við hugbúnaðargerð. Unnið verður jöfnum höndum með textabundin og myndræn notendaskil. Helstu efnisatriði: klasar og hlutir, eiginleikar, smiðir private – public, nafnasvæði, aðferðir, erfðir, viðmót, hljóð, myndir, kvikar, leit, fylki, pallaleikir, röðun, frávik, skrár, sjálfkvaðning o.fl.
Forkröfur: TÖLF2TF05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ferlum við gerð hlutbundinna forrita.
- forritun í klösum.
- forritun með grafík og hljóðum.
- leit í gögnum.
- flóknari gagnaskipan (fylki, listar o.fl.) og snið gagna.
- meðhöndlun frávika.
- sjálfkvaðningu í forritum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- sýna sjálfstæð vinnubrögð við forritun.
- velja viðeigandi gagnaskipan.
- vinna með uppskiptingu forrits í aðalforrit og aðferðir.
- gera sjálfstæða klasa, tilviksaðferðir og klasaaðferðir.
- vinna með þýðingu og keyrslu forrita í myndrænum notendaskilum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrifa, þýða og villuleita hlutbundin forrit.
- leysa forritunarverkefni með því að beita klasaforritun, aðferðum og atburðadrifinni forritun.
- styrkja eigin hæfni í forritun með því að nýta upplýsingar í kennslubókum og á netinu.
- geta haldið áfram forritunarnámi sínu og tekist á við þyngri verkefni, hvort heldur á framhalds- eða háskólastigi.