Að vera í fjarnámi
Nokkur atriði er mikilvægt að hafa í huga fyrir nemendur í fjarnámi:
- Fjarnám er sjálfsnám undir handleiðslu kennara! Það krefst mikils aga og skipulagningar af hálfu nemenda.
- Námsáætlun er á Moodle. Hana skulu nemendur kynna sér vel í upphafi annar.
- Mikilvægt er að nemendur í fjarnámi geri sér grein fyrir því að fjarnám felur í sér aukna ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Mikilvægt er að lesa vel allar leiðbeiningar og fyrirmæli, virða tímasetningar og leysa þau verkefni sem fyrir eru lögð.
- Nemendur þurfa að fara reglulega (nokkrum sinnum í viku) inn á Moodle til að fylgjast með því sem fram fer í áfanganum.
- Nemendur með námsörðugleika þurfa að láta kennara sína vita.
- Þurfi nemendur á sérstökum úrræðum í námi að halda, m.a. vegna lesblindu, þarf beiðni þar að lútandi að koma frá nemandanum sjálfum.
- Nemendur þurfa að láta kennara og áfangastjóra vita vilji þeir hætta í áfanga.
- Nemendur þurfa að hafa aðgang að nettengdri tölvu. Nemendur þurfa að hafa lágmarkskunnáttu í ritvinnslu og tölvunotkun og hafa einhverja æfingu í að nota veraldarvefinn. Nemendur þurfa að hafa sitt eigið netfang.
- Nemendur þurfa að hafa tíma til að stunda fjarnámið.
Ýmsar upplýsingar um fjarnámið
Microsoft Office pakkinn
Nemendur í fjarnámi geta fengið Microsoft Office pakkann hjá skólanum og notað hann á meðan þeir eru skráðir í nám við skólann.
Moodle kennslukerfið:
Allir nemendur fá aðgang að sínum áföngum í Moodle. Á Moodle hafa nemendur aðgang að fjölbreyttu námsefni, námsáætlunum, verkefnum og prófum. Á Moodle er einnig hægt að hafa samband við kennara sem og aðra nemendur sem skráðir eru í sama áfanga. Hér má finna leiðbeiningar um hvernig á að skrá sig inn á Moodle.
Náms- og starfsráðgjöf
Fjarnemendur hafa aðgang að náms- og starfsráðgjafa skólans, hægt er að hafa samband í gegnum tölvupóst, panta tíma hér eða í síma 450 4400.
Ráðgjöf við val á áföngum og námsmat
Hægt er að fá ráðgjöf við val á áföngum og námsmat hjá áfangastjóra og náms- og starfsráðgjafa. Fjarnámsnemendur sem óska eftir mati á fyrra námi skulu senda inn öll gögn sem varða nám þeirra í öðrum skólum til fjarnámsstjóra. Nemendur sem eru skráðir í fjarnám í MÍ fá fyrra nám sitt metið án aukakostnaðar. Nemendur sem ekki eru skráðir nemendur við skólann greiða 10.000 krónur fyrir námsmat.