Áfangalýsing
Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér orðaforða vísinda, færða og ferðamála og verði læsir á flóknari texta en áður. Nemendur lesa akademískar greinar, afla sér upplýsinga og vinna kynningarverkefni. Nemendur halda áfram að æfa sig að skilja rit- og talmál, að tjá sig betur skriflega og munnlega í tengslum við kennsluefnið og fræðist meira um ferðamál og fagorðaforða.
Forkröfur: ENSK3HO05
Markmið
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál.
- ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað.
- þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi.
- rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag.
- stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu og áhrifum þeirra á þjóðfélagsmótun í þeim löndum þar sem tungumálið er talað.
- menningu þjóða þar sem tungumálið er talað sem og eigin menningu í alþjóðlegu samhengi uppruna tungumálsins og útbreiðslu, og skyldleika þess við íslenskt mál.
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi.
- hefðum sem eiga við um talað og ritað mál t.d. mismunandi málsnið.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega.
- lesa sér til fróðleiks og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir því hverrar gerðar textinn er.
- greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta.
- nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni menningarlegs eðlis.
- átta sig á málfarsmun, mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar.
- beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis.
- tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér.
- skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni.
- skrifa margs konar texta, formlega og óformlega, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu.
- að skilja mál sem talað er með mismunandi hreim og við mismunandi aðstæður sem og skilja algengustu orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talað mál.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni.
- flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum.
- skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau vegin og metin.
- nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti.
- skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki.
- skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna, jafnvel um tiltölulega flókið efni, þótt hann þekki ekki til þess, þar sem hann gæti þurft að fá staðfestingu á einstaka smáatriðum, sérstaklega ef mállýskan eða hreimurinn er framandi.
- lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt, átta sig á tilgangi og afstöðu textahöfundar og bregðast við eða tjá skoðanir sínar munnlega eða skriflega um efni þeirra.
- leysa ýmis mál sem upp koma í samskiptum og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður, taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt.
- skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín.