Áfangalýsing:
Áfanginn gengur út á að nemendur lesi enskan texta sér til ánægju og yndisauka. Í stað tímasóknar er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda þar sem þeir nýta tímann til lesturs og verkefnavinnu sem tengist textanum. Nemendur velja sér fimm bækur, lesa þær og skila inn skýrslum. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á að útvega sér lesefni. Nemendur geta sjálfir ákveðið hvaða bækur þeir lesa í samráði við kennara.
Forkröfur: ENSK3HO05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mismunandi tegundum bókmennta.
- enskum bókmenntum og samfélaginu eins og það birtist í bókmenntum.
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa bókmenntatexta sér til gagns og gamans.
- skilja meginefni óstytts bókmenntatexta.
- vnna með nýjan orðaforða.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig á ensku um efni sem hann hefur kynnt sér til hlítar.
- átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum.
- tjá rökstudda afstöðu og taka þátt í málefnalegri umræðu um bókmenntir.