Áfangalýsing:
Farið verður í ýmsar kvikmyndir og bókmenntir sem gefa mynd af sögu og menningu Frakklands. Nemendur kynnast meðal annars hvernig það er að vera ung í Frakklandi í dag. Frönsk matarmenning er hluti af áfanganum eins og samband við frönskumælandi í nær-umhverfinu. Nemendur munu kynna sér sögu og menningu fyrrverandi nýlenda Frakklands og stöðu frönskunnar í þeim löndum ásamt ríkjasambandi þeirra við Frakklandi. Áfanginn á að halda áfram að örva almenna forvitni nemandans á tungumálum og menningu.
Forkröfur: Engar
Markmið:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- ýmsum sviðum franska tungumálsins, samfélagi og sögu.
- menningu og sögu í frönskumælandi löndum.
- helsta grunnvelli fransks samfélags: til dæmis sögu, matarmenningu, bókmenntum og kvikmyndum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér endurgjöf.
- tjá sig um franska samfélagið og franska menningu á sjálfstæðan hátt.
- leita að upplýsingum á sjálfstæðan hátt.
- bera saman íslenskt og franskt samfélag og menningu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta með sjálfstæðum hætti tjáð sig um franskt samfélag.
- tjá skoðanir sínar á efni þeirra; hvort sem er munnlega eða skriflega.
- tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti.
- afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér þau við verkefnavinnu.
- lesa texta, s.s. bókmenntatexta, greinar og skýrslur sem tengjast málefnum samtímans þar sem fram koma ákveðin viðhorf eða skoðanir.