Kennsla í iðnmeistaranámi hefst í janúar 2024
Lýsing: Iðnmeistaranám er öflugt nám í stjórnunar- og rekstrargreinum sem miðar að því að gera nemendur hæfa til að reka fyrirtæki skv. 10. grein iðnaðarlaga nr. 42/1978 og vera færa um að sjá um leiðsögn og kennslu iðnnema í eigin iðngrein. Hver maður getur leyst til sín meistarabréf ef hann fullnægir skilyrðum 3. gr. laganna, hefur lokið sveinsprófi, unnið síðan undir stjórn meistara í iðngrein sinni eitt ár minnst og jafnframt lokið meistaraprófi í iðninni frá meistaraskóla. Meistarabréf veitir meistara leyfi til að reka þá iðngrein sem meistarabréf hans tekur til.
Námsframvinda: Námið er 38 einingar en þess utan þurfa sumar iðngreinar að taka fleiri einingar, sjá neðst. Námið hefur námslok á fjórða hæfniþrepi íslensks hæfniramma um menntun.
Námsfyrirkomulag: Námið er kennt í dreifnámi í samstarfi við Verkmenntaskóla Austurlands. Námið er skipulagt sem fjarnám með skyldumætingu í kennslustundir á Teams en þó þannig að mögulegt sé fyrir nemendur að stunda námið með vinnu. Innritunargjöld í iðnmeistaranámi eru 15.000 kr og einingagjald er 5.000 kr á hverja einingu.
Inntökuskilyrði: Til að hefja iðnmeistaranám þurfa nemendur að hafa lokið sveinsprófi í löggiltum iðngreinum.
Brautarlýsing á www.namskra.is
Námsgrein | Skammstöfun | 4. ÞREP | ||
Bókhald og skjalavarsla (1. önn) | MEIS | 4BS05 | 5 | |
Fjármál (1. önn) | MEIS | 4FJ04 | 4 | |
Sölufræði (1. önn) | MEIS | 4SÖ03 | 3 | |
Kennsla og leiðsögn (2. önn) | MEIS | 4KL06 | 6 | |
Gæðastjórnun (2. önn) | MEIS | 4GS02 | 2 | |
Rekstrarfræði (2. önn) | MEIS | 4RE05 | 5 | |
Stofnun fyrirtækja og upphaf rekstrar (3. önn) | MEIS | 4SF05 | 5 | |
Stjórnun (3. önn) | MEIS | 4ST06 | 6 | |
Öryggi og umhverfi (3. önn) | MEIS | 4ÖU02 | 2 | |
Samtals einingafjöldi | 38 |
Fagtengd efni fyrir húsasmiði, pípara, blikksmiði og múrsmiði
- Efnisfræði og burðarþol MEFB4MS03BA 3 ein
- Mælitækni og mælitæki MMÆL4MS03BA 3 ein
- Sértæk lög og reglugerðir MLÖG4MS02BA 2 ein
Fagtengd efni fyrir vélvirkja, stálsmiði og rennismiði
- Val í faggrein 8 ein
Fagtengd efni fyrir rafvirkja og rafeindavirkja
- Kennt hjá Rafmennt, nánari upplýsingar hjá þeim 30 ein