Áfangalýsing:
Í áfanganum kynnast nemendur íslenskum skáldsögum. Þeir fá einnig þjálfun í greiningu þeirra og lesa jafnframt ýmsar fræðigreinar um bókmenntir. Nemendur gera einnig grein fyrir lestrarreynslu sinni munnlega og skriflega.
Forkröfur: ÍSLE2BR05 og ÍSLE2MG05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þróunarsögu íslenskra skáldsagna og smásagna.
- helstu bókmenntafræðilegum hugtökum sem tengjast skáldsögum og smásögum.
- vinnubrögðum sem viðhöfð eru í rannsóknarritgerðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- fjalla af skilningi og þekkingu um íslenskar skáldsögur og smásögur.
- vinna einn og/eða í hópi undir leiðsögn kennara að kynningum sem fela í sér greiningu texta og upplýsingaöflun.
- nýta tölvutækni til að ganga frá textum til verkefnaskila.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- greina, meta og tjá sig um bókmenntaverk af þekkingu, víðsýni, ábyrgð og virðingu.
- njóta þess að lesa bókmenntaverk.
- vinna verkefni af nákvæmni og með því að beita sjálfstæðum vinnubrögðum.