Áfangalýsing:
Markmið áfangans er að kenna nemendum grunnatriði í kvikmyndagerð og efla skilning á gildi kvikmynda í samfélaginu. Nemendur kynnast grundvallar atriðum í öllum helstu faggreinum innan kvikmyndagerðar með áherslu á handritagerð, helstu þáttum í framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis og eftirvinnslu þeirra. Námið er að bæði verklegt og bóklegt en nemendur vinna oft saman í teymisvinnu, skipta með sér verkum og gera myndbönd. Að loknum áfanganum skulu nemendur hafa þekkingu á:
Forkröfur: Engar
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ólíkum faggreinum innan kvikmyndagerðar.
- gildi handrita og hugmyndavinnu.
- grundvallar atriðum tækninnar.
- grundvallar atriðum mynd- og hljóðmáls.
- sögulegum ágripum kvikmyndanna.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skrifa drög að einfaldri kvikmyndahugmynd.
- meðhöndla grunntæki kvikmyndagerðar.
- nota klippiforrit.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja verkferil fyrir stutt myndband.
- vinna í teymi og tileinka sér markviss vinnubrögð.
- undirbúa og framkvæma sýningu.