Næsti dreifnámshópur fer af stað í ágúst 2025, með fyrirvara um næga þátttöku.
Lýsing: Matartæknanám býr nemendur undir matreiðslu í eldhúsum heilbrigðisstofnana, leik-, grunn- og framhaldsskólum og mötuneytum vinnustaða. Matartæknar semja matseðla með fæðutengdar ráðleggingar Embættis landlæknis að leiðarljósi, breyta matseðlum fyrir einstaklinga sem þurfa á sérfæði að halda og skipuleggja innkaup. Þeir panta inn og taka á móti hráefni unnu og óunnu, undirbúa það til matargerðar og meðhöndla það til geymslu á viðeigandi hátt. Þeir matreiða máltíðir fyrir ólíka hópa, s.s. börn, unglinga, íþróttafólk og aldraða. Ennfremur þá sem þurfa á sérfæði og sjúkrafæði að halda og meta skammtastærðir hverju sinni. Þeir afgreiða fæði úr eldhúsi og stjórna skömmtunarfæribandi í stóreldhúsum. Þeir sjá um frágang samkvæmt heilbrigðisreglugerð. Matartæknar hafa einnig hæfni til að útbúa fínni kvöldverðarétti, leggja á borð, framreiða mat og annast þjónustu. Að lokinni brautskráningu frá skóla getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis til Embættis landlæknis og öðlast þá réttindi til að starfa sem matartæknir á Íslandi.
Námsframvinda: Matartæknanám er 204 eininga bóklegt og verklegt nám sem lýkur með fagprófi matartæknis á 3. námsþrepi. Matartæknanám er þrjár annir í skóla ásamt vinnustaðanámi í 15 vikur og starfsþjálfun í 38 vikur.
Inntökuskilyrði á brautina: Nemandi sem lokið hefur námi í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla getur innritast í matartæknanám. Inntökuskilyrði eru nánar útfærð í skólanámskrá. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í kjarnagreinum þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B, B+ eða A í þessum greinum í grunnskóla eða hafa lokið undirbúningsáfanga.
ALMENNUR KJARNI 16 ein | |||||||
Námsgrein | Skammstöfun | 1. ÞREP | 2. ÞREP | 3. ÞREP | |||
Enska | ENSK | 2DM05 | 5 | ||||
Íslenska | ÍSLE | 2BR05 | 5 | ||||
Stærðfræði | STÆR | 2GS05 | 5 | ||||
Íþróttir | ÍÞRÓ | 1AL01 | 1 | ||||
Einingafjöldi | 16 ein | 1 | 15 | ||||
FAGGREINAR 83 ein | |||||||
Námsgrein | Skammstöfun | 1. ÞREP | 2. ÞREP | 3. ÞREP | |||
Aðferðarfræði matreiðslu | AFMA | 1MT04 | 2MA04 | 4 | 4 | ||
Hráefnisfræði matreiðslu | HEMF | 2HF03 | 3 | ||||
Innra eftirlit og matvælaöryggi | IEMÖ | 1GÆ02 | 2 | ||||
Matreiðsla | MATR | 1MG10 | 2MA10 | 3SF10 | 10 | 10 | 10 |
Matseðlafræði og næringarútreikningar | MASF | 2MF02 | 3MN03 | 2 | 3 | ||
Matur og menning | MAMO | 2MM02 | 2 | ||||
Nám og tölvur | NÁTÖ | 1UT03 | 3 | ||||
Næringarfræði | NÆRI | 2FV05 | 3SF05 | 5 | 5 | ||
Sérfæði, bóklegt | SFBÓ | 3SB03 | 3 | ||||
Soð, súpur, sósur og eftirréttir | SSSE | 2GS04 | 4 | ||||
Tækjafræði, aðbúnaður og starfsumhverfi | TFAS | 1ÖU02 | 2 | ||||
Vöruþekking sérfæðis | VÖÞE | 3VÞ02 | 2 | ||||
Þjónað til borðs | ÞTBF | 2ÞT05 | 5 | ||||
Örverufræði | ÖRVR | 2HR02 | 2 | ||||
Öryggismál og skyndihjálp | ÖRSK | 1ÖR02 | 2 | ||||
Einingafjöldi | 83 ein | 60 | 73 | 55 | |||
STARSÞJÁLFUN OG VERKLEG ÞJÁLFUN Á VINNUSTAÐ 105 ein | |||||||
Námsgrein | Skammstöfun | 1. ÞREP | 2. ÞREP | 3. ÞREP | |||
Starfsþjálfun | STÞM | 1MA25 | 2MA25 | 3MA25 | 25 | 25 | 25 |
Verkleg þjálfun á vinnustað | VÞVS | 1SF10 | 2SF10 | 3SF10 | 10 | 10 | 10 |
Einingafjöldi | 105 ein | 35 | 35 | 35 |