Áfangalýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á grundvallaratriðum næringarfræðinnar og samspili næringar, heilsu og líkamsþjálfunar. Fjallað er um næringarþörf mannsins, næringargildi og samsetningu helstu matvara. Farið verður í uppbyggingu og samsetningu próteina, fitu og kolvetna. Fjallað verður um vatn, vítamín og steinefni og gerð grein fyrir gildi þessara efna í fæðunni. Matseðlar metnir og samdir og reiknað næringargildi út frá töflum Ýmsir næringartengdir sjúkdómar ræddir.
Forkröfur: Engar
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grundvallaratriðum í næringarfræði.
- samspili næringar og heilsu.
- helstu orkuefnum fæðunnar.
- hlutverki fæðubótarefna sem hluta af fæðuinntöku.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meta eigin orkubrennslu út frá viðurkenndum töflum.
- meta eigin orkuþörf yfir ákveðinn tíma.
- setja saman matseðla þar sem hollusta og næringargildi er haft að leiðarljósi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta eigin neysluvenjur.
- meta samspil orkuþarfar og orkuneyslu og geta brugðist við ef þetta jafnvægi raskast.
- meta þörf fyrir neyslu fæðubótarefna.