Lýsing: Markmið með námi á sérnámsbraut er að undirbúa nemendur undir daglegt líf, atvinnuþátttöku og/eða frekara nám við hæfi.
Námsframvinda: Nám á sérnámsbraut miðast alltaf við átta annir og er einingafjöldinn sem nemendur útskrifast með einstaklingsbundinn þó reynt sé að miða við allt að 240 einingar. Námið er einstaklingsmiðað og aðlagað að hverjum og einum nemanda. Námið er á fyrsta þrepi en þó geta nemendur tekið áfanga á öðrum námsþrepum og námsbrautum í samráði við kennara. Þar sem námið er einstaklingsmiðað er ekki alltaf víst að nemandi geti tekið alla áfanga sem skilgreindir hafa verið í kjarna og því verður að gera ráð fyrir því að aðlaga þurfi áherslur í námi og bregða út af fyrirfram gefnum ramma. Eins er hugsanlegt að breyta þurfi einingafjölda í áföngum hverju sinni til að koma til móts við einstaklingsmarkmið.
Inntökuskilyrði: Sérnámsbrautin er ætluð nemendum sem hafa viðurkennd greiningargögn um fötlun og geta ekki nýtt sér almennt námstilboð framhaldsskóla en þurfa sérhæft, einstaklingsmiðað nám.
KJARNI 101 EIN | ||||||||
Námsgrein | Skammstöfun | 1. ÞREP | 2. ÞREP | 3. ÞREP | ||||
Fjölmiðlafræði | FJÖL | 1FF04 | 4 | |||||
Félagsfræði | FÉLA | 1SA04 | 4 | |||||
Heilbrigðisfræði | HBFR | 1HL04 | 4 | |||||
Heimilisfræði | HEFR | 1BA02 | 1HM02 | 4 | ||||
Hönnun | HÖNN | 1SH04 | 4 | |||||
Íslenska | ÍSLE | 1LO04 | 1MF04 | 1SM04 | 1SS04 | 16 | ||
Íþróttir | ÍÞRÓ | 1AÍ02 | 2 | |||||
Landafræði | LAND | 1HÁ04 | 1LÍ04 | 8 | ||||
Náms- og starfsfræðsla | NÁSS | 1NN03 | 3 | |||||
Myndlist | MYNL | 1GR04 | 4 | |||||
Náttúrufræði | NÁTT | 1IN04 | 4 | |||||
Saga | SAGA | 1ÍL04 | 4 | |||||
Starfsumhverfi og vinnustaðakynning | STAR | 1BS04 | 1HV04 | 8 | ||||
Stuttmynd | STUT | 1GR04 | 4 | |||||
Stærðfræði | STÆR | 1AS04 | 1FÁ04 | 1RM04 | 1TM04 | 16 | ||
Trésmíði | TRÉS | 1HV04 | 4 | |||||
Umhverfisfræði | UMHV | 1NS04 | 4 | |||||
Upplýsingatækni | UPPT | 1GR04 | 4 | |||||
Einingafjöldi | 101 | 101 | ||||||
VAL 139 EIN | ||||||||
Áfangar eru valdir í samráði við áfangastjóra og kennara brautarinnar | ||||||||
Einingafjöldi | 139 | 139 |