Menntaskólinn á Ísafirði, sem aðildarskóli að Fjarmenntaskólanum, býður upp á nám á sjúkraliðabraut. Námið er í umsjón Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra, Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólans á Ísafirði.
Lýsing: Tilgangur sjúkraliðanáms er að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Sjúkraliðanám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum. Að lokinni brautskráningu frá skóla getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis
Námið skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar. Nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar er bæði bóklegt og verklegt nám í skóla og starfsnám á heilbrigðisstofnunum.
Námsframvinda: Námið er 204 einingar. Meðalnámstími er 3 ár, þar af 5 annir í skóla.
Inntökuskilyrði á brautina: Að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Nemendur þurfa að vera orðnir 18 ára til að hefja vinnustaðanám.
Námsfyrirkomulag: Námið er kennt í dreif- og fjarnámi. Staðlota er í HJVG1G05 og LÍBE1LB01. Aðrir áfangar eru kenndir í fjarnámi. Vinnustaðanám og starfsþjálfun fer fram á heilbrigðistofnunum. Ekki er tekið tillit til fyrri starfsreynslu til skerðingar á starfsþjálfun né vinnustaðanámi.
Brautaruppsetning á www.namskra.is
KJARNI 40 EIN | ||||||||||
Námsgrein | Skammstöfun | 1. ÞREP | 2. ÞREP | 3. ÞREP | ||||||
Danska | DANS | 2BF05 | 5 | |||||||
Enska | ENSK | 2DM05 | 2RR05 | 3HO05 | 10 | 5 | ||||
Félagsvísindi | FÉLV | 1IF05 | 5 | |||||||
Íslenska | ÍSLE | 2BR05 | 2MG05 | 10 | ||||||
Íþróttir | ÍÞRÓ | 1HH01 | 1LH01 | 3 fein* | 5 | |||||
Náms- og starfsfræðsla | NÁSS | 1NN03 | + 3ein | 6 | ||||||
Náttúruvísindi | NÁTV | 1IF05 | 5 | |||||||
Stærðfræði (velja annað hvort) | STÆR | 2GF05 | 2RU05 | 5 | ||||||
Einingafjöldi | 55 | 21 | 30 | 5 | ||||||
KJARNI 164 EIN | ||||||||||
Heilbrigðisfræði | HBFR | 1HH05 | 5 | |||||||
Hjúkrun | HJÚK | 1AG05 | 2HM05 | 2TV05 | 3FG05 | 3LO03 | 3ÖH05 | 5 | 10 | 13 |
Hjúkrun verkl. | HJVG | 1VG05 | 5 | |||||||
Líffæra- og lífeðlisfræði | LÍOL | 2SS05 | 2IL05 | 10 | ||||||
Líkamsbeiting | LÍBE | 1HB01 | 1 | |||||||
Lyfjafræði | LYFJ | 2LS05 | 5 | |||||||
Næringafræði | NÆRI | 1NN05 | 5 | |||||||
Samskipti | SASK | 2SS05 | 5 | |||||||
Sálfræði | SÁLF | 2IS05 | 3ÞR05 | 5 | 5 | |||||
Siðfræði | SIÐF | 2SF05 | 5 | |||||||
Sjúkdómafræði | SJÚK | 2GH05 | 2MS05 | 10 | ||||||
Skyndihjálp | SKYN | 2EÁ01 | 1 | |||||||
Starfsþjálfun sjúkraliða | STAF | 3ÞJ27 | 27 | |||||||
Sýklafræði | SÝKL | 2SS05 | 5 | |||||||
Upplýsingalæsi á tölvur og sjúkaskrár | UPPÆ | 1SR05 | 5 | |||||||
Verknám sjúkraliða | VINN | 2LS08 | 3GH08 | 3ÖH08 | 24 | |||||
Einingafjöldi | 151 | 26 | 56 | 69 | ||||||
Einingar á 1. þrepi 22%. | ||||||||||
Einingar á 2. þrepi 46%. | ||||||||||
Einingar á 3. þrepi 32%. |
*ÍÞRÓ1AL01/ÍÞRÓ1HH01/ÍÞRÓ1SÉ01