Sjúkraliðabrú
Menntaskólinn á Ísafirði, sem aðildarskóli að Fjarmenntaskólanum, býður upp á nám á sjúkraliðabraut. Námið er í umsjón Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra, Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólans á Ísafirði.
Lýsing: Tilgangur sjúkraliðanáms er að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Sjúkraliðanám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum. Að lokinni brautskráningu frá skóla getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis
Námið skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar. Nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar er bæði bóklegt og verklegt nám í skóla og starfsnám á heilbrigðisstofnunum.
Námsframvinda: Námið er 151 einingar. Meðalnámstími er 3 ár, þar af 5 annir í skóla.
Inntökuskilyrði á brautina:
- Að nemandi hafi staðist grunnskólapróf í samræmi við námsmat sem ráðuneytið birtir um viðmið við lok grunnskóla í almennum hluta Aðalnámsskrár eða sambærilegt nám.
- Umsækjandi þarf að vera orðinn 23 ára og hafa að lágmarki 5 ára starfsreynslu við umönnun aldraðra, fatlaðra eða sjúkra.
- Umsækjandi þarf að vera starfandi við umönnun aldraðra, fatlaðra eða sjúkra þegar sótt er um námið auk þess að skila meðmælum frá vinnuveitanda.
Námsfyrirkomulag: Námið er kennt í dreif- og fjarnámi. Staðlota er í HJVG1G05 og LÍBE1LB01. Aðrir áfangar eru kenndir í fjarnámi.
Vinnustaðanám: Vinnustaðanám fer fram á heilbrigðistofnunum. Fyrri starfsreynsla er ekki metin til skerðingar á vinnustaðanámi.
Starfsþjálfun: Skóli má ekki útskrifa nemendur nema nemandinn hafi farið í starfsþjálfun. Starfsþjálfunin er samtals 27 einingar og þarf nemandi að hafa tekið 80 vaktir í 60 – 100% vinnu á að minnsta kosti tveimur deildum eða tveimur stöðum. Skipta má starfsþjálfun í tvö til þrjú tímabil. Nemandi er á launum á meðan á starfsþjálfun stendur.
Nemandi þarf sjálfur að útvega sér starfsþjálfunarpláss (sækja um starfsþjálfunarpláss á heilbrigðisstofnun) en umsjónaraðili sjúkraliðanáms þarf að samþykkja námsstaðinn áður en starfsþjálfunin hefst.
Að loknu námi í starfsþjálfun þarf skólinn að fá í hendur staðfestingu á að nemandi hafi tekið starfþjálfunina og umsögn um nemandann. Hluta starfsþjálfunar (30 – 40) vaktir má nemandi byrja að taka eftir að hafa lokið VINN2SL08 og HJÚK2HM05 og HJÚK2TV05.
Starfsþjálfun fæst ekki metin nema hjá nemendum sem hafa unnið í 5 ár eða lengur í a.m.k. 60% samfelldu starfi við umönnunarstörf. Þeir nemendur geta fengið 20 vaktir metnar. Nemendur sem fá vaktir metnar þurfa samt sem áður að vera í starfsþjálfun á tveimur til þremur stöðum.
Brautaruppsetning á www.namskra.is
Sjúkraliðabrú 151 eining | ||||||||||
Námsgrein | Skammstöfun | 1. ÞREP | 2. ÞREP | 3. ÞREP | ||||||
Heilbrigðisfræði | HBFR | 1HH05 | 5 | |||||||
Hjúkrun | HJÚK | 1AG05 | 2HM05 | 2TV05 | 3FG05 | 3ÖH05 | 3LO03 | 5 | 10 | 13 |
Hjúkrun verkleg | HJVG | 1VG05 | 5 | |||||||
Líffæra- og lífeðlisfræði | LÍOL | 2SS05 | 2IL05 | 10 | ||||||
Líkamsbeiting | LÍBE | 1HB01 | 1 | |||||||
Lyfjafræði | LYFJ | 2LS05 | 5 | |||||||
Næringafræði | NÆRI | 1GR05 | 5 | |||||||
Sálfræði | SÁLF | 2IS05 | 3ÞR05 | 5 | 5 | |||||
Siðfræði | SIÐF | 2SF05 | 5 | |||||||
Sjúkdómafræði | SJÚK | 2GH05 | 2MS05 | 10 | ||||||
Skyndihjálp | SKYN | 2EÁ01 | 2 | |||||||
Sýklafræði | SÝKL | 2SS05 | 5 | |||||||
Upplýsingalæsi | UPPÆ | 1RS05 | 5 | |||||||
Vinnustaðanám | VINN | 2LS08 | 3ÖH08 | 3GH08 | 8 | 16 | ||||
Starfsþjálfun | STAF | 3ÞJ27 | 27 | |||||||
Einingafjöldi | 146 | 26 | 64 | 61 |