Áfangalýsing
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði og nákvæmni í framsetningu. Markmiðið er að nemendur fái æfingu í meðferð talna og lausnum á verkefnum. Meginviðfangsefni áfangans er bók- stafareikningur, þ.e. forgangsröð aðgerða, brotareikningur, liðun og þáttun, veldi og ferningsrætur og jöfnur. Farið verður farið í hnitakerfið og jöfnu beinnar línu. Að lokum verður farið í hlutföll og prósentureikning.
Forkröfur: STÆR1GS05 eða hæfniseinkunn B úr grunnskóla.
Markmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- undirstöðuatriðum talnareiknings fyrir aðgerðir með samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu.
- forgangsröðun aðgerða og algengum stærðfræðitáknum.
- liðun og þáttun.
- veldi og rótum.
- undirstöðuatriðum bókstafareiknings.
- jöfnum.
- hnitakerfi og jöfnu beinnar línu.
- brotum, hlutföllum og prósentureikningi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota algeng stærðfræðitákn og túlka þau í mæltu máli.
- leysa verkefni með forgangsröðun aðgerða.
- nota algebru við lausn einfaldra verkefna.
- setja upp einfaldar jöfnur og leysa þær.
- leysa verkefni með brotum, hlutföllum og prósentum.
- vinna með jöfnu beinnar línu í hnitakerfi.
- einfalda svör og námunda tölur þar sem það á við.
- nota einfalda reiknivél og/eða önnur hjálpartæki .
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að :
- lesa úr stærðfræðilegum upplýsingum.
- skrá lausnir sínar og vinna á skipulegan hátt.
- beita skipulegum aðferðum við lausn stærðfræðilegra verkefna.
- útskýra lausnaraðferðir sínar á verkefnum.