STÆR2GS05

Stærðfræði - Grunnáfangi

Áfangalýsing

Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði og nákvæmni í framsetningu.  Markmiðið er að nemendur fái æfingu í meðferð talna og lausnum á verkefnum.  Meginviðfangsefni áfangans er bók- stafareikningur, þ.e. forgangsröð aðgerða, brotareikningur, liðun og þáttun, veldi og ferningsrætur og jöfnur. Farið verður farið í hnitakerfið og jöfnu beinnar línu. Að lokum verður farið í hlutföll og prósentureikning.

 

Forkröfur: STÆR1GS05 eða hæfniseinkunn B úr grunnskóla.

 

Markmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • undirstöðuatriðum talnareiknings fyrir aðgerðir með samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu.
  • forgangsröðun aðgerða og algengum stærðfræðitáknum.
  • liðun og þáttun.
  • veldi og rótum.
  • undirstöðuatriðum bókstafareiknings.
  • jöfnum.
  • hnitakerfi og jöfnu beinnar línu.
  • brotum, hlutföllum og prósentureikningi.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota algeng stærðfræðitákn og túlka þau í mæltu máli.
  • leysa verkefni með forgangsröðun aðgerða.
  • nota algebru við lausn einfaldra verkefna.
  • setja upp einfaldar jöfnur og leysa þær.
  • leysa verkefni með brotum, hlutföllum og prósentum.
  • vinna með jöfnu beinnar línu í hnitakerfi.
  • einfalda svör og námunda tölur þar sem það á við.
  • nota einfalda reiknivél og/eða önnur hjálpartæki .

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að :

  • lesa úr stærðfræðilegum upplýsingum.
  • skrá lausnir sínar og vinna á skipulegan hátt.
  • beita skipulegum aðferðum við lausn stærðfræðilegra verkefna.
  • útskýra lausnaraðferðir sínar á verkefnum.

 

 

 Áfangakeðja í stærðfræði