Áfangalýsing
Fjallað er um nokkrar aðferðir sem notaðar eru til að draga tölfræðilegar ályktanir. Nemendur læra að draga ályktanir um þýði á grundvelli úrtaka, setja fram tilgátur og prófa þær. Farið verður yfir helstu líkindadreifingar, grunnatriði úrtaksfræða, úrtaksdreifingu, höfuðsetningu tölfræðinnar, öryggisbil, tilgátupróf, fylgnireikninga og aðhvarfsgreiningu.
Forkröfur: STÆR2LT05
Markmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- því hvernig vinna skal með gögn og reikna lýsistærðir.
- helstu líkindadreifingum.
- grunnatriðum úrtaksfræða.
- höfuðsetningu tölfræðinnar.
- öryggisbilum, öryggismörkum og öryggisstigum.
- tilgátuprófum fylgni og einfaldri línulegri aðhvarfsgreiningu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með gögn og draga ályktanir af þeim.
- vinna með líkindadreifingar.
- reikna öryggisbil.
- setja fram tilgátur og framkvæma tilgátupróf.
- túlka fylgnistuðla.
- nýta tölfræðiforrit við vinnslu og framsetningu tölfræðilegra ganga.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau.
- geta hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu til að velja þær reikniaðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim rétt.
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra viðfangsefna og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna.
- skrá niður lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega fyrir öðrum.
- geta meðtekið og túlkað útskýringar og röksemdir annarra í mæltu máli og í texta.
- leysa stærðfræðileg viðfangsefni í öðrum námsgreinum og í daglegu lífi með því að beita gagnrýninni og skapandi hugsun.