Áfangalýsing:
Markmið kennslunnar er að nemendur haldi áfram að æfa sig að skilja rit- og talmál, geti tjáð sig betur skriflega og munnlega í tengslum við kennsluefnið, þekki fleiri reglur í þýskri málfræði og auki orðaforða sinn.
Forkröfur: ÞÝSK1AF05
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- flóknari þýskum orðaforða.
- fjölbreyttara hlustunarefni.
- fleiri málfræðireglum.
- fleiri atriðum varðandi menningu, sögu og landafræði þýskumælandi landa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja meira talað mál ef talað er hægt og skýrt.
- lesa lengri þýska texta.
- skrifa lengri þýska texta tengdir kennsluefni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- eiga fjölbreyttari samskipti við þýskumælandi fólk á skriflegan og munnlegan hátt.
- afla sér fjölbreyttari upplýsinga með hjálp kennslugagna og upplýsingatækni.