Stúdentsbraut - starfsnám (viðbótarnám)
Lýsing: Brautin er ætluð nemendum í starfsnámi með námslok á 3. hæfniþrepi. Markmið með námsleiðinni er að uppfylla þær lágmarkskröfur sem aðalnámskrá framhaldsskóla setur til stúdentsprófs. Sérhæfing nemandans er fólkin í starfsnámi hans. Mikilvægt er að nemendur skipuleggi nám sitt til að mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem þeir stefna á í háskóla.
Námsframvinda: Brautin samanstendur af þeim áföngum sem nemendur af starfsnámsbrautum þurfa að lágmarki að taka til að ljúka stúdentsprófi af starfsnámsbraut. Heildarfjöldi eininga ræðst af einingafjölda starfsnámsbrautar og þeim einingum sem koma fram hér, að því tilskyldu að þessir áfangar hafi ekki verið hluti af starfsnámsbraut. Við bætast einingar sem nemandi tekur til að mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem hann stefnir á í háskóla.
Nemendur útskrifast að lágmarki með 200 einingar. Nemandi getur tekið þessa áfanga jafnt og þétt gegnum námið eða bætt þeim við þegar starfsnámi lýkur hyggi hann á áframhaldandi nám.
Inntökuskilyrði á brautina: Brautin er ætluð nemendum í starfsnámi með námslok á 3. hæfniþrepi, eða þeim sem hafa lokið starfsnámi með námslok á 3. hæfniþrepi. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áföngum í þessum greinum.
ALMENNUR KJARNI 35 ein | ||||||||
Námsgrein | Skammstöfun | 1. ÞREP | 2. ÞREP | 3. ÞREP | ||||
Danska | DANS | 2BF05 | 5 | |||||
Enska | ENSK | 2DM05 | 5 | |||||
Íslenska | ÍSLE | 2BR05 | 2MG05 | 3SB05 | 3XX05* | 10 | 10 | |
Stærðfræði | STÆR | 2GS05 | 5 | |||||
Einingafjöldi | 35 ein | 25 | 10 | |||||
Bundið áfangaval 15 ein | ||||||||
Enska | ENSK | 2RR05 | 3HO05 | 3FO05 | 5 | 10 | ||
Stærðfræði | STÆR | 2JA05 | 2LT05 | 2VH05 | 3DF05 | 15 | 5 | |
Einingafjöldi | 15 ein | |||||||
Bundið áfangaval 5 ein | ||||||||
Félagsvísindi | FÉLV | 1IF05 | 5 | |||||
Náttúruvísindi | NÁTV | 1IN05 | 5 | |||||
Einingafjöldi | 5 ein |
* valáfangi í íslensku á 3. þrepi