Lánshæft sérnám á Íslandi er löggilt iðnnám og annað a.m.k. eins árs starfsnám á framhaldsskólastigi sem hlotið hefur staðfestingu ráðherra samkvæmt lögum nr. 92/2008 og uppfyllir að auki öll eftirtalin skilyrði:
- námið hafi fengið jákvæða umsögn af viðkomandi starfsgreinaráði,
- námið sé ekki launað samkvæmt kjarasamningi umfram grunnframfærslu námslána á Íslandi, sbr. gr. 3.1.1 og 3.2,
- námslok séu á þriðja hæfnisstigi,
- sambærilegt nám sé almennt ekki í boði á háskólastigi á Íslandi.
Ef sérnám hefst beint eftir grunnskólapróf skal ekki veita lán vegna fyrstu anna námsins í almennum kjarnagreinum eða grunnnámi iðngreina. Að hámarki skal veita lán fyirr 75% af heildarnámstíma að meðtöldum launuðum starfsnámstíma.
Reglur LÍN miðast út frá ECTS-einingum. Sérnám er á framhaldsskólastigi og er því um annað einingakerfi að ræða. Mikilvægt er að kynna sér hvernig einingar viðkomandi sérnáms umreiknast í ECTS einingar.
Nemalaun eru meðhöndluð eins og aðrar tekjur samkvæmt reglum sjóðsins og geta skert lánið.
Athugið að almennt nám í framhaldsskóla til stúdentsprófs eða sambærilegs prófs er ekki lánshæft. Hins vegar geta framhaldsskólanemar átt rétt á jöfnunarstyrk ef þeir stunda nám fjarri heimahögum.