Skrifstofa MÍ
Skrifstofa skólans, sími 450 4400, er opin milli kl. 08.00 og 16.00 frá mánudegi til fimmtudags. Á föstudögum er opið á milli kl. 08.00 og 13.00.
Veikindi skal tilkynna í gegnum INNU eða á netfangið misa@misa.is önnur erindi má einnig senda á þetta netfang.
Ritari skólans er Elín Ólafsdóttir. Ritari annast afgreiðslu og veitir upplýsingar um skólastarfið auk almennra skrifstofustarfa. Ritari er aðstoðarmaður skólameistara í daglegri umsýslu skólans.